Olil og Bergur ræktunarmenn ársins

Olil Amble og Bergur Jónsson á Syðri-Gegnishólum í Flóahreppi voru valin ræktunarmenn ársins 2010 í hrossarækt s.l. laugardag.

Fagráð í hrossarækt tilnefndi fjórtán ræktunarbú til verðlaunanna, sem Bændasamtök Íslands standa að. Sunnlendingar voru áberandi á listanum en verðlaunaafhendingin fór fram á ráðstefnunni „Hrossarækt 2010″ á Hótel Sögu.

Bergur og Olil reka öflugt ræktunarbú og var mikill fjöldi hrossa úr ræktun þeirra sýndur á þessu ári og útkoman frábær. Þau hafa byggt upp glæsilega aðstöðu utan um starfsemina í Syðri–Gegnishólum í Flóahreppi og er mikils að vænta þaðan á komandi árum.
(Tekið af sunnlenska fréttavefnum sunnlenska.is)