Málalyklar Flóahrepps

Starfsfólk á sveitarstjórnarskrifstofu Flóahrepps og starfsmenn Héraðsskjalasafns Árnesinga hafa á þessu ári unnið sameiginlega að gerð málalykils fyrir Flóahrepp.

Samhliða gerð lykilsins hafa verkferlar við skráningu skjala og erinda í málasafn sveitarfélagsins verið endurskoðaðir. Lokið var við gerð málalykilsins núna í október og samþykkti Héraðsskjalasafn Árnesinga lykilinn 2. nóvember. Annars vegar er um að ræða tilraunaútgáfu sem gildir frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2011 og svo lykill sem gildir frá 1. janúar 2011 til 31. desember 2015. Sveitarstjórnarskrifstofa Flóahrepps er fyrsta sveitarstjórnarskrifstofan á landinu sem hefur samþykktan málalykil.