Vettvangsferð um Flóahrepp

Sveitarstjórn Flóahrepps ásamt atvinnu- og umhverfisnefnd sveitarfélagsins fóru í vettvangsferð um sveitarfélagið föstudaginn 8. október s.l.

Skipulögð var heimsókn á sex staði í sveitarfélaginu þar sem stundaður er mismunandi atvinnurekstur.
Byrjað var á heimsókn í fangelsið Bitru. Margrét Frímannsdóttir og Einar Valur Oddsson sýndu húsakynni og kynntu starfsemina. Í Bitru sem er opið fangelsi, eru vistaðir 18 fangar við eins heimilislegar aðstæður og möguleiki er á. Engir rimlar, víggirðingar eða læst hlið eru í Bitru og vistmenn hafa ýmislegt fyrir stafni í aðlögun fyrir lífið utan fangelsis. Gestir fengu að skoða glæsilega skartgripasmíði hjá einum vistmanna sem vinnur muni úr hraungrýti Eyjafjallajökuls og silfri. Vistmenn sáu einnig um vel úti látið morgunverðarhlaðborð fyrir gesti sem fóru reynslunni ríkari frá Bitru.


Frá Bitru var farið í Paralamp/Formax í Gegnishólaparti. Þar reka Bjarni Sigurðsson og Helgi Friðrik Halldórsson fyrirtæki sem hannar og smíðar allt frá ljósum í fiskflökunarborð fyrir frystihús til vatnshlaupabretta fyrir íslenska hestinn. Þeir Bjarni og Helgi ásamt Margréti Sigfúsdóttur, kynntu gestum starfsemi fyrirtækisins þar sem fram fer öflug hugmynda- og smíðavinna.


Frá Gegnishólaparti var haldið í Tungu til Sóleyjar Andrésdóttur og gestir fengu að skoða í sveitabúðina Sóley. Verslunin er rekin að danskri fyrirmynd og flestar vörur eru fluttar inn beint frá Danmörku. Fallegar gjafavörur og dýrindis krem eru seld í sveitabúðinni og þess má geta að á meðan að gestir dvöldu í Tungu komu ferðamenn frá Bandaríkjunum til að kaupa dúka sem þau höfðu heyrt um og fást í sveitabúðinni Sóley.


Hjá Sóley var borðuð dýrindis súpa með heimabökuðu brauði áður en ferð var haldið áfram.


Leiðin lá næst í Gerðar en þar reka feðgarnir Stefán Geirsson og Geir Ágústsson ásamt eiginkonum sínum, myndarlegt kúabú. Stefán sýndi gestum kornuppskeruna, fjósið og mjaltabásinn ásamt heimasætunni Melkorku sem hafði mikinn áhuga á að sýna gestum kálfana.


Frá Gerðum var haldið í Vatnsholt þar sem rekin er ferðaþjónusta. Í Vatnsholti er tekið á móti gestum í glæsilegum húsakynnum og góð aðstaða er í vel útibúnum íbúðum eða herbergjum. Búið er að ráðast í miklar breytingar á húsnæði og því til viðbótar er vinna hafin við húsnæði sem flutt var í heild sinni á staðinn, húsnæði með 10 herbergjum fyrir næturgesti. Á bænum eru hundar, hestar, kettir, kanínur, kindur og holdakýr og stefnt er að því að vera með lítinn dýragarð þar sem hægt verður að sjá flóru íslenskra húsdýra. Margrét Ormsdóttir og Jóhann Helgi Hlöðversson sýndu gestum aðstæður og kynntu starfsemi sína.


Sveitarstjórn og atvinnunefnd enduðu ferðina í Brugghúsinu Ölvisholti þar sem Jón Elías Gunnlaugsson kynnti fyrir gestum framleiðsluferil bjórgerðar. Í Brugghúsinu er framleiddur gæðabjór sem seldur er víða um heim. Þetta er afar vandasöm starfsemi þar sem engu má skeika í öllu ferlinu. Ferðaþjónusta í tengslum við bjórgerðina er stöðugt vaxandi enda um sérstaka framleiðslu að ræða.


Stefnt er að því að fara í vettvangsferð á hverju ári til að skoða þá fjölbreyttu atvinnustarfsemi sem fram fer í sveitarfélaginu. Þetta var góður og lærdómsríkur dagur og þeim aðilum sem tóku á móti gestum er þakkað fyrir góðar móttökur.
Myndir úr ferðinni má sjá í myndasafni, vettvangsferð.