Vegur að Flóðgátt

6. október samþykkti sveitarstjórn Flóahrepps, fyrir sitt leyti að hefja framkvæmdir við endurbætur á vegslóða sem liggur að Flóðgáttinni, inntaksmannvirki Flóaáveitunnar.

Flóahreppur og Flóaáveitufélagið fengu úthlutað 2.500.000 kr. styrk frá Vegagerðinni til framkvæmdanna.Guðmundur Stefánsson, formaður Flóaáveitufélagsins, Margrét Sigurðardóttir sveitarstjóri, Halla Kjartansdóttir fulltrúi landeigenda í Ölvisholti og Þormóður Ólafsson fyrir hönd landeigenda í Hjálmholti gengu að Flóðgáttinni í byrjun október. Gangan, sem er um 2 km löng, var farin til að skoða aðstæður á staðnum. Tóftir má sjá á þremur stöðum á leiðinni sem verða varðveittar. Nokkrar myndir úr ferðinni eru undir myndasafni, gönguferð að Flóðgátt.