Tónleikar í Félagslundi

Föstudagskvöldið 29. október n.k. verða haldnir síðustu tónleikarnir í tónleikaröð félagsheimilanna í Flóahreppi. Nú er komið að Benny Crespo´s í Félagslundi kl. 20:30, aðgangseyrir kr. 2.000.

Þetta band er skipað þeim Helga Rúnari, Magnúsi Öder, Bassa Ólafssyni og Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur, betur þekkt sem Lay Low. Þau koma með sitt hljóðkerfi og ýmsan ljósabúnað svo búast má við rafmögnuðu andrúmslofti í Félagslundi þetta kvöld. Helgi Valur trúbador hitar upp fyrir tónleikana. Þeir sem vilja tryggja sér miða í tíma hafi samband við Kristínu í síma 692-8565, Erling í síma 898-8779 eða Ingu í síma 691-7082. Einnig verður hægt að kaupa miða við inngang meðan húsrúm leyfir.