Áfrýjun dómsmáls til Hæstaréttar

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, hefur ákveðið að áfrýja dómi Héraðsdóms um aðalskipulag í Flóahreppi til Hæstaréttar. Svandís neitaði á sínum tíma að staðfesta aðalskipulag Flóahrepps í fyrrum Villingaholtshreppi á þeirri forsendu að Landsvirkjun hefði tekið þátt í að greiða kostnað við skipulagið sem laut að virkjun við Urriðafoss. Sveitarstjórn vildi ekki una því og ákvað að höfða mál gegn ráðherra. Niðurstaða Héraðsdóms var sú að ráðherra hefði ekki heimild til að synja staðfestingu á aðalskipulaginu og að framkvæmdaaðilum væri ekki óheimilt að taka þátt í kostnaði við aðalskipulag sveitarfélaga.