Gámasvæði

Gámasvæði sveitarfélagins í Heiðargerði var lokað 1. júlí s.l. Einnig hafa gámarnir við Merkurhraun og í Halakoti verið fjarlægðir.

Flóahreppur gerði samning við Íslenska Gámafélagið um aðgengi íbúa og sumarhúsaeigenda í Flóahreppi að gámasvæði fyrirtækisins í Hrísmýri við Suðurlandsveg þar sem gámasvæði Árborgar var áður starfrækt.
Þetta var gert í ljósi þess að mjög kostnaðarsamt er orðið að urða óflokkaðan úrgang og flest sveitarfélög á Suðurlandi hafa gripið til þess ráðs að loka gámasvæðum til að koma í veg fyrir að óflokkaður úrgangur berist á svæðin.
Samfara lokun gámasvæða í nágrannasveitarfélögum jókst úrgangsmagn á gámasvæði Flóahrepps til muna og því var ákveðið að fara þessa leið.
Gámasvæðið er opið alla virka daga frá kl. 13:00 – 18:00 og um helgar frá kl. 13:00 – 16:00.