Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt tillögu að Aðalskipulagi Flóahrepps í fyrrum Villingaholtshreppi 2006-2018.
Tillagan var til kynningar 1. – 2. mars 2010 sbr. 1. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga og í auglýsingu frá 8. apríl til 21. maí 2010. Frestur til að skila athugasemdum var til 21. maí 2010.
Alls bárust 86 athugasemdir við tillöguna.
Sveitarstjórn samþykkti tillögu að aðalskipulagi ásamt greinargerð og skýringaruppdráttum sem og umsagnir sveitarstjórnar um athugasemdir sbr. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
