Að vekja athygli á því sem vel er gert

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 15. sinn við hátíðlega athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 1. júní kl. 15:00. 
Heimili og skóli – landssamtök foreldra óska eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2010 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Sjá nánar á heimasíðunni www.heimiliogskoli.is undir tenglinum “foreldraverðlaun”.

Bestu kveðjur,
Heimili og skóli – landssamtök foreldra