Upplestrarkeppni Flóaskóla var haldin í dag en hún er undankeppni fyrir Stóru upplestrarkeppnina á okkar svæði sem haldin verður í Félagslundi þann 17. mars nk. Það voru nöfnurnar Helga Leifsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir sem voru valdar úr hópi 7. bekkinga sem fulltrúar skólans í stóru keppnina og Viðar Janus Helgason er varamaður þeirra. Dómnefnd skipuðu Hallfríður Ósk Aðalsteinsdóttir Lyngholti, Ágúst Ingi Ketilsson Brúnastöðum og Markús Ívarsson Vorsabæjarhóli. Á myndinni eru vinningshafarnir með dómnefndinni.
