Álagningaseðlar berast á næstu dögum til eigenda fasteigna í Flóahreppi en eindagi fyrstu greiðslu er um mánaðarmótin mars/apríl.
Álagning hefur ekki breyst frá álagningu síðasta árs utan sorpgjalda en þau hækkuðu vegna aukins kostnaðar þar sem sorpurðunarstað Sunnlendinga hefur nú verið lokað og sorp sem fer til urðunar er keyrt í Álfsnes á Kjalarnesi.
Leikskólagjöld í Krakkaborg taka breytingum í febrúar ár hvert samkvæmt vísitölu neysluverðs. Árið 2009 var hækkun umtalsverð vegna þróunar neysluverðsvísitölu þannig að sveitarstjórn ákvað að fresta helming af áætlaðri hækkun og verður hún ekki sett inn í gjöldin. Þess í stað var tekin ákvörðun um ýmsar aðgerðir til sparnaðar s.s. að fella starfsmannafundi leikskóla inn í dagvinnutíma starfsmanna.
Breyting leikskólagjalda fyrir árið 2010 hefur átt sér stað og munu gjöld fyrir börn sem eru alla daga vikunnar í átta klukkustundir með fullu fæði hækka um 839 kr. á mánuði. Það er alltaf leiðinlegt að hækka gjöld, sérstaklega á þessum tímum og er reynt að stemma stigu við því. Þetta er þó ekki mikil hækkun miðað við hækkun á öllum aðföngum s.s. matvörum, hreinlætisvörum o.þ.h.
Fæðiskostnaður í Flóaskóla og skólavistun taka breytingum tvisar á ári, í ágúst og febrúar, samkvæmt vísitölu neysluverðs. Fæðiskostnaður er nú 265 kr. pr/dag en innifalið í því eru ávextir í morgunhressingu, máltíð í hádeginu og mjólk. Skólavistun kostar 442 kr. pr/dag og innifalið í því er vistun frá skólalokum til kl. 17:00 ásamt síðdegishressingu.
