Héraðsþing HSK

88. héraðsþing HSK verður haldið í Þingborg laugardaginn 13. mars nk. og hefst kl. 10:00. Héraðssambandið Skarphéðinn fagnar 100 ára afmæli í ár. Þingið er því afmælisþing Skarphéðins og verður þessarra miklu tímamóta minnst sérstaklega á þinginu.

Fyrir liggur að Gísli Páll Pálsson, sem verið hefur formaður sambandsins frá 2003, gefur ekki kost á sér til endurkjörs og þá gefur Helga Fjóla Guðnadótir í varastjórn ekki kost á sér áfram.


Rétt til setu á þinginu eiga 106 fulltrúar frá 58 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins. Á heimasíðu HSK undir liðnum viðburðir má sjá fulltrúafjölda félaga.


Á þinginu kemur út ríkulega myndskreytt ársskýrsla um starfsemi HSK og aðildarfélaganna á liðnu ári. Auk hefðbundinna þingstarfa verður Íþróttamaður HSK 2009 kjörinn á þinginu og þá verða ýmis sérverlaun veitt til félaga og einstaklinga. (Tekið af heimasíðu HSK)