Vegaxlir við Flóaveg

Eins og vegfarendur hafa tekið eftir, hafa vasar eða vegaxlir verið settar á tvo staði við Flóaveg, annars vegar við afleggjarann að Þingborg og hins vegar við afleggjarann að Langholti. Ekki náðist að klæða vasann á móts við Langholtsveg en stefnt er að því að gera það um leið og slitlag verður lagt á Langholstveginn næsta vor.

Samkvæmt upplýsingum frá Svani Bjarnasyni umdæmisstjóra Vegagerðarinnar á Suðurlandi er reynt að setja vasa við vegamót þar sem framkvæmdir eru í gangi á annað borð eins og við Langholtsveg en einnig vegna þess að sveitarstjórn hefur óskað eftir úrræðum til að auka öryggi vegfarenda á Flóavegi. Vasinn á móts við Þingborg var fjármagnaður af umferðaröryggisfé.