Gaulverjabæjarkirkja 100 ára

Sunnudaginn 22. nóvember hélt sóknarnefnd Gaulverjabæjarsóknar upp á 100. kirkjudag Gaulverjabæjarkirkju með hátíðarmessu.  Fyrir altari þjónuðu fjórir prestar, Sveinn Valgeirsson sóknarprestur, Valgeir Ástráðsson og Úlfar Guðmundsson, fyrrverandi sóknarprestar og Eiríkur Jóhannsson prófastur Árnesprestakalls. Predikun flutti biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson. Fjölmenni var við messuna og hvert sæti skipað.
Eftir messu bauð sóknarnefnd upp á kaffiveitingar í Félagslundi sem kvenfélag Gaulverjabæjarhrepps annaðist. Þar fluttu ungir fiðluleiksnemendur nokkur lög með stjórnanda sínum Maríu Weiss, Úlfar Guðmundsson, fyrrverandi sóknarprestur flutti nokkur fróðleikskorn um Gaulverjabæjarkirkju og sókn. Kirkjan fékk afhentar góðar gjafir í tilefni dagsins frá sóknarbörnum, núverandi og fyrrverandi. Margrét Jónsdóttir, formaður sóknarnefndar stýrði hátíðardagskrá í Félagslundi.