Sveitarstjórn og umhverfisnefnd Flóahrepps funduðu með Íslenska Gámafélaginu miðvikudaginn 21. október s.l. um sorpmál. Á fundinum var m.a. farið yfir árangur þriggja tunnu kerfisinsí tölum og máli. Það var ánægjulegt að heyra að íbúar eru nánast undantekningalaust að flokka sitt sorp en þó var munur á milli efra og neðra svæðis hvað varðar árangur. Birtar verða á næstunni upplýsingar um árangur og framvindu verksins. Meðferð á rúlluplasti er til fyrirmyndar og nánast allt það plast sem hirt er hjá bændum, nýtanlegt til endurvinnslu.
Í lok fundar afhenti sveitarstjóri, fyrir hönd Flóahrepps, framkvæmdastjóra Íslenska Gámafélagsins viðurkenningarskjal fyrir gott samstarf í eitt ár við umhverfisverkefnið “þriggja tunnu kerfið” í Flóahreppi.
