Bleikur dagur í Flóaskóla

Síðastliðinn mánudag var bleikt þema í Flóaskóla.


Nemendur og starfsfólk mættu margir hverjir í einhverju bleiku og skapaðist skemmtileg stemmning í skólanum. Meðfylgjandi er mynd af nokkrum nemendum úr Flóaskóla þeim Sveini Orra, Hjördísi Björg, Helgu Margréti, Baldri Þór og Ásthildi.