8. bekkur í Tré og list




8. bekkingar í Flóaskóla fóru nýverið í heimsókn í Tré og list í Flóahreppi. 
 

 

Þar tóku á móti þeim hjónin Ólafur Sigurjónsson og Bergþóra Guðbergsdóttir. Þau sýndu nemendum safnið, röktu upphaf þess og fóru yfir þær sýningar sem eru í gangi. Heimsóknin var hluti af námskeiði fyrir 8. bekk sem er ætlað að efla samfélagsvitund, umhverfismennt og starfsfræðslu. Við þökkum aðstandendum Tré og list kærlega fyrir höfðinglegar móttökur.