Undirritun samnings

Gestur Már Þráinsson fyrir hönd verktakafyrirtækisins Smíðanda og Margrét Sigurðardóttir fyrir hönd Flóahrepps undirrituðu samning um byggingarframkvæmdir við Flóaskóla miðvikudaginn 23. september s.l.

Í samningi er gert ráð fyrir því að Smíðandi skili viðbyggingu við Flóaskóla uppsteyptri og tilbúinni að utan ásamt tengibyggingu að eldra húsi, samtals um 1.134 m2. Samkvæmt samningi á þessum verkþætti að vera lokið í maí 2009.