Átakið “Göngum í skólann” sem er átak á landsvísu var formlega sett í Flóaskóla í morgun, miðvikudaginn 9. september. Þó svo átakinu sé ætlað að hvetja börn í þéttbýli til að ganga í skólann og huga að umferðarmálum og hreyfingu þá á það ekki við nemendur í Flóaskóla. Hins vegar var athyglinni beint að aðstæðum barna í dreifbýli, umgengni þeirra við skólabíla og öryggismálum því tengdu. Fulltrúi frá Menntamálaráðuneytinu, Hafsteinn Pálsson, Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður, Guðni Ágústsson og Kristín Sigurðardóttir skólastjóri héldu ávörp í tilefni af setningu átaksins.
