Vinnuskólinn

Vinnuskóla Flóahrepps lauk fimmtudaginn 16. júlí með pylsupartíi. Unglingarnir hafa starfað á ýmsum stöðum í sveitarfélaginu undir stjórn Birgittu Sigurðardóttur, í Austur-Meðalholti undir stjórn Hannesar Lárussonar og í Þjórsárveri undir stjórn Erlings Sæmundssonar. Krakkarnir hafa staðið sig mjög vel í öllum sínum verkum eins og sjá má merki um í sveitarfélaginu og fengu þau viðurkenningarskjal fyrir vel unnin störf.
Því miður gátu þau ekki öll mætt á lokadaginn en myndir af þeim sem mættu eru komnar í myndasafnið, ýmsir viðburðir 1, unglingavinna 2009.

Vinnuskólinn

Vinnuskólanum fer senn að ljúka en lokadagur er 16. júlí. Þá eiga allir unglingar sem hafa verið í vinnuskólanum í sumar að koma í Þingborg.

Krakkarnir hafa að hluta til verið í vinnu við Íslenska bæinn í Austur-Meðalholtum undir leiðsögn Hannesar Lárussonar en sveitarstjórn ákvað að styrkja starfið þar með framlagi vinnuskólans.
Snyrtilegt umhverfi félagsheimilanna er einnig framtak vinnuskólans.
Flokksstjóri vinnuskólans er Birgitta Sigurðardóttir en hún var einnig flokkstjóri síðasta sumar.
Fleiri myndir verða settar af unglingunum fljótlega.