Að beiðni Flóahrepps tók Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sýni úr vatnslögn frá vatnsveitunni í Ruddakróki. Við sýnatökur kom í ljós að neysluvatn uppfyllir ekki ákvæði neysluvatnsreglugerðar um vatnsgæði. Í samræmi við neysluvatnsreglugerðina ber að tilkynna slíkt til notenda og jafnframt meta líkur á hvort að heilsu manna geti stafað hætta af. Samráð hefur verið haft við Héraðslækni Suðurlands og Matvælastofnun.
Til að tryggja heilnæmi vatnsins er mælt með því að vatn sem notað er til drykkjar sé soðið áður. Meðan unnið er að úrbótum eru allir íbúar og vatnsnotendur í sveitarfélagsinu hvattir til að sjóða vatnið fyrir neyslu í öryggisskyni.
Vatnsveitan, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, mun vinna að endurheimtu vatnsgæða og verða notendur upplýstir jafnóðum um ástand vatnsins. Sýnataka af vatninu verður gerð reglulega.
Sýni hafa nú verið tekin úr öllum vatnslindum sveitarfélagsins og þau send til rannsóknar.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands.
