
Samið hefur verið við nánast alla skólabílstjóra sveitarfélagsins um áframhaldandi akstur næsta skólaár en vegna breytinga í skólaakstri var samningum við þá sagt upp eftir síðustu áramót.
Stærstu breytingar eru þær að 8. bekkur næsta skólaárs verður í Flóaskóla og akstur á Selfoss mun því minnka umtalsvert.
Þessi árgangur er óvenjustór eða um 15 nemendur.
Flóahreppur hefur auglýst eftir aðila til skólaaksturs á einni leið, í Vallaskóla á Selfossi, ca. 40 km. á dag.
Um er að ræða morgunferð og áætlaður fjöldi farþega er sex.
Tilskilin leyfi til aksturs farþega eru skilyrði fyrir samningi og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi og í samræmi við kröfur sveitarstjórnar um skólabíla.
Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 480-4370.
