
Íbúafundur um lausagöngu búfjár, veggirðingarmál ofl var haldinn í Þingborg fimmtudaginn 11. júní s.l.
Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands hélt framsöguerindi þar sem m.a. kom fram að nauðsynlegt væri fyrir Flóahrepp að gera drög að samþykkt um búfjárhald.Hann taldi að skoða þyrfti hvort að vegstæði þjóðvegar 1, Flóavegar, yrði friðað fyrir lausagöngu. Gera mætti samning við Vegagerðina um að girða og sjá um viðhald hennar gegn því að sveitarfélagið tæki upp lausagöngubann og sæi um hreinun á vegstæði sambærilegt við það sem t.d. Mýrdalshreppur hefur gert. Ólafur taldi einnig rétt að banna lausagöngu stórgripa í sveitarfélaginu.Í máli hans kom fram að með breyttum búskaparháttum væru æ fleiri sem hefðu ama af ágangi sauðfjár sem gengur laust í sveitarfélögum og að halda þyrfti því fé innan girðingar sem ekki væri keyrt á afrétt á sumrin.
Flestir bændur sem tóku til máls voru ekki hlynntir því að lausagöngubann yrði sett á og töldu að lausaganga búfjár væri ekki vandamál í Flóahreppi.
