Útskrift úr leikskóla

Það var glæsilegur hópur sem útskrifaðist úr leikskólanum Krakkaborg á vorhátíð skólans miðvikudaginn 27. maí.
Oddný og Ragnar í Brandshúsum, foreldrar eins útskriftarnemans, gáfu hópnum boli sem á stóð: “Ég fer í Flóaskóla”.

Á vorhátíðinni var foreldrum og gestum m.a. skemmt með söng barnanna, foreldrafélagið annaðist veitingar og sýning var á listaverkum eftir börnin. Vel heppnaður dagur og sannarlega ástæða til aða óska útskriftarnemum velfarnaðar í framtíðinni.