Íbúafundur var haldinn í Flóaskóla 13. maí s.l. á vegum Staðardagskrárnefndar í Flóahreppi.
Á fundinum kynnti Hafsteinn Hafliðason, formaður nefndar hvað Staðardagskrá 21 væri. Í kynningu kom fram að Staðardagskrá 21 sé velferðaráætlun sem sveitarfélög vinna að hvert um sig þar sem horft er á þróun samfélagsins til langs tíma og sett niður áætlun um þau verkefni sem þarf að hrinda í framkvæmd eða áætlun um þau verk sem vinna þarf í hverju samfélagi um sig til að nálgast markmiðið um sjálfbæra þróun á 21. öld, þróun sem tryggir komandi kynslóðum viðunandi lífsskilyrði. Áætlunin snýst ekki eingöngu um umhverfismál í venjulegum skilningi heldur er henni ætlað að taka jafnframt tillit til efnahagslegra og félagslegra þátta.
Farið var yfir þá málaflokka sem nefnd um Staðardagskrá í Flóahreppi hefur sett á oddinn en þeir eru:
Drykkjarvatn, fráveitumál, mengun, úrgangsmál, skipulagsmál, atvinnulíf, stofnanir sveitarfélagsins, matvælaframleiðsla, mannlíf og félagsheilsa og samgöngur og fjarskipti.
Fundarmönnum var skipt í þrjá hópa sem settu á blað hugmyndir hópsins um hvern málaflokk, hvernig staðan væri í dag og hvernig fólk vildi sjá viðkomandi málaflokk í framtíðinni.
Frekari úrvinnsla bíður betri tíma og verður kynnt þegar hún er tilbúin.
