Endurskoðuð fjárhagsáætlun 2009

Endurskoðuð fjárhagsáætlun Flóahrepps fyrir árið 2009 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 6. maí s.l. Helstu breytingar voru þær að gert er ráð fyrir hærri skatttekjum en reiknað var með, útsvari og tekjujöfnunarframlagi og að vextir af innistæðum verði hærri en í upphaflegri áætlun.
Helstu hækkanir á kostnaðarliðum eru vegna hreinsunarmála, sorphirðu og seyrulosunar.

Í heild er gert ráð fyrir um 20 mkr. rekstarafgangi  í stað 13 mkr. rekstrarhalla eða um 33 mkr. hærri rekstrarniðurstöðu en upphaflega áætlunin gerði ráð fyrir.
Endurskoðaða áætlun má sjá hér.