Ungfrú Suðurland 2009

Fegursta stúlka Suðurlands árið 2009 er úr Flóahreppi en Ellý Hrund Guðmundsdóttir frá Hólshúsum var kjörin fegurst stúlkna á Suðurlandi föstudaginn 6. mars s.l. Ellý Hrund er fædd 23. janúar 1990. Foreldrar hennar eru Guðrún Elísa Gunnarsdóttir og Bárður Valgeir Magnússon og Guðmundur Nortind Gíslason og Juliet Nortind. Ellý hyggur á nám í snyrtifræði en að öðru leyti er framtíðin óráðin.