Leikhópur ungmennafélaganna í Flóahreppi hefur nú sýnt gamanleikinn Páskahret fimm sinnum og er óhætt að segja að viðtökur hafi verið góðar. Áhorfendur hafa skemmt sér konunglega yfir hrakförum ferðahóps sem verður innlyksa í veðurofsa við Hrafntinnusker. Voveiflegir atburðir eiga sér stað og spennan í skálanum magnast. Ekki er síður spennandi að fylgjast með hvernig björgunarleiðangri úr byggð reiðir af á leið sinni að Hrafntinnuskeri. Gamanið er í fyrirrúmi alla sýninguna og stendur leikhópurinn sig með stakri prýði með dyggri aðstoð frábærrar sviðsmyndar, ljósanotkunar og mögnuðum áhrifshljóðum.
Látð Páskahret ekki fram hjá ykkur fara og tryggið ykkur miða hjá Fanneyju í síma 892-4155. Miðaverð er 1.500 kr.
Sýnt er í félagsheimilinu Þingborg og eru næstu sýningar:
föstudaginn 13. mars kl. 20:30
laugardaginn 14. mars kl. 20:30
sunnudaginn 15. mars kl. 20:30
föstudaginn 20. mars kl. 20:30
laugardaginn 21. mars kl. 20:30 (Lokasýning)
Ungmennafélögin í Flóahreppi
