Bútasaumur í Félagslundi

Félagsheimilin i Flóahreppi eru nýtt á margvíslegan hátt. 13. og 14. mars var haldið námskeið í bútasaum í Félagslundi.


Fyrir námskeiðinu stóð Guðrún Erla Gísladóttir ættuð frá Selfossi nú búsett í Bandaríkjunum.

Námskeið þetta var ætlað fyrir lengra komna í þessu handverki sem nýtur vaxandi vinsælda. Guðrún Erla er búsett i Minneapolis í Minnesota fylki og stendur þar fyrir námskeiðahaldi ásamt því að kynna og selja eigin hönnun í bútasaum


Um 70 konur af öllu landinu mættu og saumuðu af miklum móð þessa helgi í Félagslundi. Voru þær mjög ánægðar með aðstöðuna á staðnum.


Á myndinni er Guðrún Erla og hluti kvennanna niðursokknar í baksýn.