Snemmbúið páskahret í Flóahreppi

Ungmennafélögin þrjú í Flóahreppi, Vaka, Samhygð og Baldur munu föstudagskvöldið 27. febrúar frumsýna leikritið “Páskahret” eftir Árna Hjartarson í Þingborg. Leikstjóri er Jón Stefán Kristjánsson.

Sagan segir frá hópi ferðalanga sem lendir í illviðri í skíðaferð á hálendinu í dymbilviku. Ferðafólkið kemast við illan leik í skála Ferðafélags Íslands í Hrafntinnuskeri. Í gleðskap um kvöldið gerast dularfullir atburðir sem sýslumannsfulltrúi frá Hvolsvelli, sem er með í för, gengur í að rannsaka. Á meðan keppast hjálparsveitir landsins og víkingasveit lögreglunnar við að verða fyrstar á staðinn til að bjarga fólkinu. Er óhætt að segja að leikritið sé góð blanda af spennu, gríni og alvöru.


Leikarar eru alls 17 en um 30 manns koma að sýningunni á einn eða annan hátt. Sýnt verður í Þingborg um hverja helgi fram eftir marsmánuði:


Frumsýning fös. 27. febrúar 20:30


2. sýning sun. 1. mars 20:30


3. sýning fös. 6. mars 20:30


4. sýning lau. 7. mars 20:30


5. sýning sun. 8. mars 20:30


6. sýning fös. 13. mars 20:30


7. sýning lau. 14. mars 20:30


8. sýning sun. 15. mars 20:30


9. sýning fös. 20. mars 20:30


Lokasýning lau. 21. mars 20:30


Miðapantanir eru hjá Fanneyju í síma 892-4155


Miðaverð er kr. 1500.