Umhverfisverðlaun 2008

Umhverfisverðlaun Flóahrepps voru afhent í annað sinn í upphafi þessa árs. Það voru ungmennafélögin þrjú í Flóahreppi sem hlutu verðlaunin fyrir árið 2008 en þau eru Ungmennafélagið Baldur í Hraungerðishreppi, Ungmennafélagið Samhygð í Gaulverjahreppi og Ungmennafélagið Vaka í Villingaholtshreppi.

Flóahreppur veitti í fyrsta skiptið árið 2007 umhverfisverðlaun sveitafélagsins og komu þau þá í hlut Stóru Reykja og Félagsheimilisins Þjórsárvers.

Ungmennafélögin í Flóahreppi eru öll vel að þessum verðlaunum komin en þau hafa sinnt umhverfismálum af áhuga og alúð allt frá stofnun þeirra fyrir rúmum eitt hundrað árum. Skógræktarreitir félaganna eru vitnisburður um ötult starf í gegnum tíðina og eru reitir þessir notaðir við hátíðleg tækifæri enn þann dag ídag. Það er von Umhverfisnefndar Flóahrepps að verðlaun þessi verði ungmennafélögunum og íbúum öllum í Flóahreppi hvatning til að gera enn betur í umhverfismálum sveitafélagsins í framtíðinni.