Samþykkt og gjaldskrá um sorp og seyru

Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt breytingu á samþykkt og gjaldskrá um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs.  Nýbreytni í samþykkt og gjaldskrá er samþykkt um reglulega losun rotþróa við heimili og stofnanir í sveitarfélaginu á þriggja ára fresti.
Gjaldskrá er ætlað að taka mið af raunkostnaði við losun rotþróa og skiptist í þrjár greiðslur á þremur árum fyrir eina losun. Fengið var tilboð í losun en einnig þarf að greiða fyrir urðun seyru.
Greiðsla á hverju ári er 7.000 kr. eða 21.000 kr. heildargjald fyrir hverja losun.
Samþykkt og gjaldskrá má sjá í heild sinni hér til vinstri undir stjórnsýsla, gjaldskrár og samþykktir.