Breyting á aðalskipulagi

Sveitarstjórn hefur samþykkt breytingar á aðalskipulagi í fyrrum Hraungerðishreppi og Gaulverjabæjarhreppi.

Breytingar voru samþykktar á greinargerðum Hraungerðishrepps og Gaulverjabæjarhrepps til að samræma ákvæði aðalskipulags fyrrum Hraungerðishrepps, Gaulverjabæjarhrepps og Villingaholtshrepps þannig að sömu skilmálar gildi fyrir allt svæði innan Flóahrepps. Í tillögunni eru m.a. breytingar á ákvæðum varðandi stök íbúðar- og frístundahús á landbúnaðarsvæðum, skilgreining á hámarksstærðum frístunda- og íbúðarhúsasvæða í dreifbýli auk ákvæða um stærðir lóða og nýtingarhlutfall.
Jafnframt var samþykkt breyting í landi Ölvisholts sem felur í sér að um 32 ha svæði vestan Ölvisholtsvegar, milli Ölvisholts og Miklaholtshelli, breytist úr svæði fyrir frístundabyggð í landbúnaðarsvæði.
Einnig var samþykkt breyting í landi Bitru. Í breytingunni felst að á um 76 ha svæði meðfram Suðurlandsvegi breytist landnotkun úr landbúnaðarsvæði í opið svæði til sérstakra nota sem fyrirhugað er að nýta undir 18 holu golfvöll. Þá breytist afmörkun svæða fyrir frístundabyggð innan jarðarinnar án þess að hafa áhrif á stærð þeirra sem er um 67 ha.
Tillögurnar voru í auglýsingu frá 23. október til 20. nóvember 2008 með fresti til athugasemda til 4. desember.
Engar athugasemdir bárust í auglýstar tillögur.