Ályktun til Vegagerðar

Þeir tengivegir í Flóahreppi sem ekki hafa verið lagðir með bundnu slitlagi eru í afar lélegu ástandi. Viðhald og uppbygging tengivega í Flóahreppi hefur verið í lágmarki og þarf að auka verulega.
Sveitarstjórn hefur sent Vegagerðinni eftirfarandi ályktun:

Sveitarstjórn krefst þess að unnið verði að markvissum úrbótum á tengivegum sveitarfélagsins og að til þess komi aukið fé og varanlegri aðgerðir.


Þeir vegir sem sveitarstjórn Flóahrepps telur mjög brýnt að lagfæra með varanlegum hætti hið fyrsta er Hamarsvegur nr. 308 og Öndundarholtsvegur nr. 311 sem nýttur hefur verið sem neyðarvegur þegar Flóavegur lokast.


Einnig er bent á að Oddgeirshólavegur nr. 304 er í mjög lélegu ásigkomulagi og þess er vænst að farið verið í framkvæmdir við veginn samkvæmt samgönguáætlun 2007-2010.


Við þessa vegi hefur umferð aukist til muna undanfarin ár og þær framkvæmdir sem hafa átt sér stað á ofangreindum vegum eru í algjöru skötulíki og vegfarendum ekki bjóðandi.


Ofaníburður sem notaður hefur verið á vegina er leðjukenndur og á köflum hættulegur þeim sem um vegina aka.


Þetta stendur búsetu, þróun byggðar, atvinnu og ferðaþjónustu fyrir þrifum en íbúar og aðrir vegfarendur gera kröfu um gæði vega.