Að frumkvæði framkvæmdanefndar Þjórsársveita var haldinn fundur með iðnaðarráðherra til að upplýsa ráðuneytið um markmið Þjórsársveita og ræða um framtíðarnýtingu orku úr Þjórsá.
Ráðherra hlustaði á sjónarmið nefndarinnar sem lagði áherslu á að virkjun krefðist fórna heimamanna og að hagsmunum þeirra yrði að gera hátt undir höfði. Vísaði framkvæmdanefnd jafnframt til ályktunar ársþings SASS um atvinnumál þar sem því var lýst yfir að að ekki verði fallist á að sunnlensk orka verði nýtt til stóriðjuuppbyggingar utan landsfjórðungsins. Auðlindanýting og orkuframleiðsla á Suðurlandi krefjist fórna, sem ekki er ásættanleg, nema með áþreifanlegum ávinningi fyrir sunnlenskt samfélag.
Iðnaðarráðherra tók erindi framkvæmdanefndar vel og áréttaði þá skoðun sína sem hann áður hefur gert ljósa að sú umframorka sem ekki er þörf á til að sinna grunnþörfum íbúa landsins, s.s. til lýsingar hýbýla, ætti að nýta í héraði.
Ljóst er að verkefni framkvæmdanefndar er ærið þar sem orkukaupendur á Íslandi hafi hingað til reitt sig á hafnaraðgengi sem ekki sé til staðar í Þjórsársveitum.
