Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt tillögu að álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2009. Gert er ráð fyrir óbreyttri gjaldskrá frá fyrra ári utan sorphirðugjalda fyrir almennt sorp sem fer til urðunar.
Þar verður hækkun á gjaldskrá fyrir 660 ltr. kar og 1.100 ltr. kar en óbreytt gjald verður fyrir 240 ltr. tunnu.
Gjalddagareglur verða óbreyttar frá fyrra ári.
Útsvarsprósenta verður óbreytt frá fyrra ári, 13,03% af útsvarsstofni.
Aðrar forsendur fjárhagsáætlunar gera ráð fyrir 13% lækkun á framlögum jöfnunarsjóðs, 5% lækkun útsvars og óbreyttum fasteignaskatti og lóðarleigu enda verði álagningarhlutfall á ríkiseignir óbreytt.
Fjármagnsgjöld hækka um 10%.
Rekstrarkostnaði verður haldið í lágmarki árið 2009 og reynt eftir fremsta megni að leita leiða til að skera niður kostnað.
Gert verður ráð fyrir 5% samningsbundnum hækkunum launa og 0,5% hækkun mótframlags í A-deild LSS.
Einnig verður reiknað með lágmarksviðhaldi fasteigna á árinu en kappkostað að ljúka því sem eftir var af áætlaðri viðhaldsvinnu fasteigna sveitarfélagasins 2008.
Stefnt verður að hönnun, útboði og framkvæmdum við uppbyggingu Flóaskóla með fyrirvara um að fjárhagsáætlun 2009 veiti svigrúm til þess.
Sveitarstjórn samþykkti einnig að láta tæma rotþrær við heimili og stofnanir í sveitarfélaginu á þriggja ára fresti frá og með árinu 2009. Gjaldskrá vegna losunar rotþróa mun taka mið af raunkostnaði.
Hér má sjá álagningu fasteignagjalda ársins 2009.
