Söngvakeppni í Félagslundi

Frétt frá félagsmiðstöðinni Zelsiuz
Söngvakeppni Zelsiuzar – SamZel var haldinn síðast liðið föstudagskvöld í Félagslundi. Keppnin var stórglæsileg og voru alls 6 atriði sem kepptu og af öllum ólöstuðum vakti karlakórinn Mc Flói mesta athygli með flutningi sínum á þjóðsöng okkar. Fyrsta sæti hlaut Sólveig Ýr Sigurjónsdóttir með flutning sinn á Kelly Clarkson laginu Breakaway. Í öðru sæti var Kristín Rut með lagið Ást sem þekktast er í flutningi Ragnheiðar Gröndal og í þriðja sæti var Hermann Guðmundsson með Stonesour lagið Through glass
Dómnefndina skipuðu Elfa Björk Rúnarsdóttir tónlistarkennari og Idol stjarna, Ívar Örn Gíslason tónlistarmaður og Sigrún Vala Baldursdóttir söngkona.