Reiðvegir

Sveitarstjórn hefur sent Vegagerðinni bréf vegna reiðvega í sveitarfélaginu. Þar kemur m.a. fram að sveitarstjórn telji nauðsynlegt að leggja reiðveg meðfram Gaulverjabæjarvegi í átt að Stokkseyri þar sem nýlega var lagt bundið slitlag. Jafnframt telur sveitarstjórn brýnt að ljúka lagningu góðra reiðleiða meðfram Villingaholtsvegi og Gaulverjabæjarvegi þar sem lagt var bundið slitlag fyrir nokkrum árum.

Einnig er bent á að undirgöng undir þjóðveg nr. 1 við Þjórsárbrú eru lokuð af með veggirðingum sem gerir þau ónothæf.