Opnunartími þjónustumiðstöðva vegna jarðskjálfta
Ráðinn hefur verið verkefnastjóri við þjónustumiðstöðva vegna jarðskjálfta, Ólafur Örn Haraldsson.
Þjónustumiðstöðvar sem starfræktar eru í Tryggvaskála á Selfossi og í húsnæði Rauða krossins í Hveragerði verða opnar næstu daga sem hér segir:Fimmtudagur 5. júní frá kl. 13-20
Föstudagur 6. júní frá kl. 13-20
Laugardagur 7. júní frá kl. 13-16
Sunnudagur 8. júní frá kl. 13-16
Þjónustan er opin öllum þeim sem hafa orðið fyrir áhrifum af jarðskjálftunum, óháð búsetu. Í þjónustumiðstöðvunum er unnt að leita áfallahjálpar og upplýsinga og aðstoðar frá Rauða krossinum.
Starfsemin verður flutt og sameinuð þjónustumiðstöð viðlagatryggingar, mánudaginn 9. júní og verður opnunartími auglýstur sérstaklega.
