Fanney Halldóra Kristjánsdóttir hefur verið ráðinn leikskólastjóri við leikskólann Krakkaborg. Fanney er menntaður leik- og grunnskólakennari og er í meistaranámi í menntunarfræðum. Hún hefur starfað sem grunnskólakennari á Neskaupsstað síðasta ár en áður starfaði hún sem leikskólakennari um nokkurra ára skeið.
Fanney mun hefja störf sem leikskólastjóri 5. ágúst n.k.
Alls bárust þrjár umsóknir um stöðu leikskólastjóra.
