Ársreikningur 2007

Ársreikningur Flóahrepps fyrir árið 2007 var samþykktur af sveitarstjórn 19. júní s.l. að loknum tveimur umræðum.

Rekstarniðurstaða var jákvæð um rúmlega 56 milljónir.

Rekstur sveitarfélagsins skiptist í A og B hluta.

Til A hluta telst starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum. Hér er um að ræða Aðalsjóð og Eignasjóð.


Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta starsemi Flóahrepps eru vatnsveita og leiguíbúðir.


Helstu niðurstöður samantektar A og B hluta eru eftirfarandi:


Rekstrartekjur kr. 348.066.443


Rekstrargjöld kr. 290.929.412


Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur kr. 978.620


Rekstrarniðurstaða kr. 56.158.411


Eigið fé kr. 314.451.887


Skuldir kr. 133.902.806


Eignir kr. 448.354.693


Árið 2007 er fyrsta heila árið í rekstri Flóahrepps.

Hér má sjá ársreikning Flóahrepps 2007.