
Eins og fram hefur komið verður sveitarhátíðin Fjör í Flóanum haldin nú í lok mánaðarins, eða dagana 30. maí – 1. júní. Undirbúningur er í fullum gangi og verður margt á seyði.
Þar má nefna tvær málverkasýningar, aðra í Þjórsárveri en hina í Tré og list í Forsæti. Opið hús verður í íslenska bænum í Austur-Meðalholtum, hjá Jóhanni Helga og Co í Vatnsholti 2, í ferðamannafjárhúsi í Egilsstaðakoti, einnig í leikskólanum Krakkaborg og á skrifstofu Flóahrepps og e.t.v fleiri. Tónleikar með South River Band verða á laugardagskvöld.
Sveitabúðin Sóley og Ullarvinnslan í Þingborg verða opnar og í félagsheimilunum verða fjölbreyttar sýningar og veitingasala. Krakkar og fullorðnir geta brugðið sér í furðuíþróttamót og hoppkastala, boðið verður upp á morgunmat, fyrirlestur um atferli sauðfjár, útihátíð, grill, áskorendakeppni, tónleika og svo framvegis. Gönguferðir og skoðun á fallegum og merkum stöðum í sveitinni eru á dagskránni. Ýmislegt er þá ótalið, en hátíðin verður nánar auglýst í Glugganum og hér á síðunni.Enn er hægt að bæta við dagskrána og geta þeir sem vilja vera með haft samband í netfangið hgun@floahreppur.is eða í síma 892-8202.
Undirbúningsnefndin
