Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps 27. febrúar s.l. var þriggja ára fjárhagsáætlun 2009-2011 tekin fyrir til seinni umræðu.
Áætlun gerir ráð fyrir almennt óbreyttum rekstri málaflokka á tímabilinu og íbúafjölgun að meðaltali 4% á ári.
Gert er ráð fyrir 25 millj. kr. í framkvæmdakostnað vegna leikskóla árið 2010 og sömu fjárhæð árið 2011.
Einnig er gert ráð fyrir sölu fasteigna að fjárhæð 40 millj. kr. árin 2009 og 2010.
Ekki er reiknað með nýjum lántökum á tímabilinu.
Fjárhagsáætlun má sjá undir stjórnsýslu, fjárhagsáætlanir og ársreikningar.
