Hitaveita Hraungerðishrepps

Laugardaginn 8. mars var viðbótartenging við Hitaveitu Hraungerðishrepps tekin í notkun að viðstöddum fjölda gesta í blíðskaparveðri.
Það var Stefán Guðmundsson í Túni sem hleypti vatninu formlega á. Framkvæmdum lauk um mánðarmótin nóvember-desember og þá var nánast lokið við að tengja þá bæji úr fyrrum Hraungerðishreppi sem upphaflega stóð til að tengja við Hitaveituna.
Um 22 km. af lögnum voru lagðar og nam heildarkostnaður við framkvæmdir um 62 milljónir króna. Það var fyrirtækið Gröfutækni ehf. sem sá um framkvæmdir.
Guðjón Ólafsson, Bollastöðum, tók meðfylgjandi mynd af Stefáni við borholuna.