Undirbúningur er hafinn fyrir Fjör í Flóanum, sveitarhátíðina okkar góðu í Flóahreppi. Fjörið verður haldið 30. maí til 1. júní. Húsnefndir félagsheimilanna þriggja í hreppnum hafa þegar haldið tvo fundi og fjölmargar hugmyndir um skemmtilega viðburði eru komnar á kreik.
Atvinnurekendur og ferðaþjónustuaðilar í Flóahreppi eru
nú beðnir að huga að þátttöku sinni í hátíðinni. Þeir sem vilja kynna starfsemi sína, framleiðsluvörur eða þjónustu eru beðnir að hafa samband í netfangið
hgun@simnet.is eða við einhvern í húsnefndum félagsheimilanna fyrir 10. apríl. Hægt er að hafa opið hús og bjóða fólki heim, eða kynna fyrirtækið, vörur og þjónustu ásamt öðrum í einhverju félagsheimilanna. Þannig komast allir þátttakendur inn í kynningu hátíðarinnar í heild og er fólk í atvinnurekstri hvatt til að nýta þetta tækifæri.