Nýlega bárust Flóaskóla niðurstöður samræmdra prófa í 4. og 7. bekk sem haldin voru í október sl. Árangur nemenda Flóaskóla var mjög góður og yfir meðaltali bæði í okkar kjördæmi og á landinu öllu. Í fréttum hefur oft verið rætt um slakan árangur í skólum í Suðurkjördæmi og því er rétt að nota tækifærið og auglýsa þennan góða árangur nemenda í Flóaskóla. Hér fyrir neðan má sjá meðaltalseinkunnir.
Samræmd próf haustið
2007 – meðaltalseinkunnir
4. b. Ísl Landið allt 6,2 S.kjördæmi 6,0 Flóaskóli 6,3
4. b. Stæ Landið allt 6,8 S. kjördæmi 6,5 Flóaskóli 8,3
7. b. Ísl Landið allt 7,0 S. kjördæmi 6,7 Flóaskóli 8,7
7. b. Stæ Landið allt 7,0 S. kjördæmi 6,6 Flóaskóli 9,2
