Fræðslunefnd og sveitarstjórn áttu saman fund 23. janúar s.l. þar sem m.a. var fjallað um mötuneytismál og farið yfir skýrslu frá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands þar að lútandi.
Fræðslunefnd taldi að ekki gæti orðið hagræðing í rekstri miðað við þær verklagsreglur sem miðað var við í skýrslunni.
Fram kom nauðsyn þess að vinna eftir manneldismarkmiðum og að samræma matseðla og innkaup í leik-og grunnskóla.
Fræðslunefnd taldi mikilvægt að lagfæra aðstöðu í mötuneyti Krakkaborgar sem fyrst.Fjallað var um framtíðarsýn í skólamálum og hvernig best sé að haga þeim málum og undirbúningsvinnu og að málefni mötuneyta verði tekin með í þá umræðu.
Rætt var um hvort kenna eigi öllum grunnskólabörnum í Flóaskóla og möguleika þess að byggja upp fræðslu-og íþróttamannvirki við Þjórsárver.
Fram kom mikilvægi þess að hafa velvilja frá samfélaginu og sveitarstjórn í garð leik-og grunnskóla.
Aðilar voru sammála um að funda sameiginlega einu sinni til tvisar á ári enda um veigamikinn þátt að ræða í rekstri sveitarfélagsins.
