Nú er hafið samstarfsverkefni við brunavarnir Árnessýslu og leikskólans Krakkaborgar. Einu sinni í mánuði fara tvö börn úr elsta árgangi og yfirfara stöðu brunavarna í húsinu með sínum kennara.
Markmið með verkefninu er:
að tryggja að eldvarnir í leikskólanum verði ávallt eins og best verður á kosið.
að veita elstu börnunum fyrstu fræðslu um eldvarnir og kynna fyrir þeim störf slökkviliðsmanna og búnað.
að minna foreldra og forráðamenn barnanna á mikilvægiþess að hafa eldvarnir heimilisins í lagi og veita þeim leiðbeiningar um hvernig má ná því marki.
Slökkviliðið mun síðan koma í heimsókn til barnanna í vor með frekari fræðslu um eldvarnir.
Í dag fór Pétur Þór og Sóley María um húsið með Höllu og allt var í stakasta lagi.
Leikskólastjóri
