Nú er jólaundirbúningur víðast að ná hámarki og Flóahreppur að færast í jólabúning eins og aðrir staðir landsins.
Kveikt var á jólatré við Krakkaborg í lok nóvember á föndurdegi leikskólans. Börnin sungu jólalög með starfsmönnum leikskólans og boðið var upp á heitt kakó og smákökur.
Í Flóaskóla var kveikt á jólatré 4. desember með viðhöfn. Skógræktarfélag Gaulverjabæjarhrepps gaf skólanum tré og fluttu Kristín Sigurðardóttir skólastjóri og Helgi Stefánsson formaður skógræktarfélagsins ávarp.
Það er Guðmundur Jón Sigurðsson, starfsmaður sveitarfélagsins sem hefur haft veg og vanda að uppsetningu jólaljósa á jólatréin við Krakkaborg og við Flóaskóla, leikskólann, félagsheimilin Þingborg og Félagslund.
Á myndinni má sjá ljósum prýtt jólatré við leikskólann, tekinn einn fallegan morgun við sólarupprás.
