Hús á ferðinni

Milli storma undanfarið, eða nánar tiltekið þann 11. desember sl. var gamla íbúðarhúsið í Vaðlakoti tekið af grunni sínum og flutt að Austur – Meðalholtum. Þar hyggst Hannes Lárusson gera það upp.
Þetta er timburhús byggt uppúr 1930, líkt mörgum húsum til sveita sem tóku við af baðstofum og torfbæjum en slíkum húsum fækkar hér um slóðir.

Ástand hússins var furðu gott en það hefur staðið autt síðan árið 1972. Allir gólfbitar voru heilir og þak hafði aldrei lekið.

 

Síðasti ábúandi í Vaðlakoti var Árni Jónsson, einbúi sem ferðaðist um Gaulverjabæjarhreppinn á bláu reiðhjóli og muna margir eftir honum.

 

Á myndin séstu húsið í Vaðlakoti rétt áður en það fór á flutningavagn.